Öryrkjar þurfa að endurgreiða hverja ofgreidda krónu til baka, en ekki embættismenn.

Ég vil vekja athygli á héraðsdómarar og aðrir embættismenn þurfa ekki að endurgreiða ofgreidd laun sem nemur samtals 105 milljónum samkvæmt niðurstöðum héraðsdóms.

Ef öryrkjar og ellilífeyrisþegar fá ofgreidda krónu í formi bóta, launa, lífeyris eða arð, þá eru bæturnar lækkaðar niður skilyrðislaust. 

Ég er sammála Bjarna um þetta mál:

260 af æðstu emb­ætt­is­mönn­um lands­ins hefðu fengið greidd of há laun, eða því sem nam um 105 millj­ón­um króna sam­tals. Fjár­málaráðuneytið krafði emb­ætt­is­menn­ina um end­ur­greiðslu sem átti að fara fram í áföng­um á tólf mánuðum.

Bjarni sagði á Face­book fyr­ir tæpu ári síðan að fólkið í land­inu ætti ekki að þurfa að hlusta á að það sé flókið fyr­ir efsta lag rík­is­ins, æðstu emb­ætt­is­menn­ina, að skila því sem of­greitt var úr op­in­ber­um sjóðum. „Annað væri hrika­legt for­dæmi og er ekk­ert minna en siðferðis­brest­ur.“


mbl.is Dómurinn breytir engu um sannfæringu Bjarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband